7.6.09

Leðurskór

Já þessa skó saumaði ég á LK úr afgangs leðri sem ég á í poka. Ég á fullan bónuspoka af þessu brúna leðri en engan annan lit, ég væri til í rautt og grænt leður líka, þarf að athuga það. Þetta var ekkert mál að sauma þetta, ég keypti snið frá Ameríku og fór eftir því að mestu leyti. Svo á ég fullt af borðum sem ég keypti í Kanada fyrir 4 árum síðan. Ég er ótrúlega ánægð með útkomuna og þeir passa flott á LK.

1 ummæli:

ecoloco sagði...

Flottir!!! Nú verður þú bara að drífa þig í allsherjar framleiðslu...bleiur, skór, föt. Þetta er æði hjá þér.