28.10.09

Lopi

Já nú er það lopi.

Það er kallað kreppuprjón hér.

Ég verð nú að segja að mér finnst skemmtilegra að prjóna úr einhverju rándýru eðalgarni úr Storkinum eða Nálinni heldur en lopanum sem sífellt slitnar hjá mér núna. En það fæðast samt hlýjar og notalegar peysur bráðum hjá mér. Guðrún María er að klára sína peysu og ég er að prjóna eina úr einföldum plötulopa á hana, þessi sem er alltaf að slitna. Þær verða báðar mjög fallegar og góðar og eru alveg að klárast. Ég reyni að setja inn myndir á eftir.

6.10.09

Fleiri smekkir



Ég heklaði þessa um daginn, mér finnst þetta svo gaman að ég gæti alveg hugsað mér að gera fleiri. Þetta er svo fljótlegt og skemmtilegt.