28.10.09

Lopi

Já nú er það lopi.

Það er kallað kreppuprjón hér.

Ég verð nú að segja að mér finnst skemmtilegra að prjóna úr einhverju rándýru eðalgarni úr Storkinum eða Nálinni heldur en lopanum sem sífellt slitnar hjá mér núna. En það fæðast samt hlýjar og notalegar peysur bráðum hjá mér. Guðrún María er að klára sína peysu og ég er að prjóna eina úr einföldum plötulopa á hana, þessi sem er alltaf að slitna. Þær verða báðar mjög fallegar og góðar og eru alveg að klárast. Ég reyni að setja inn myndir á eftir.

6.10.09

Fleiri smekkir



Ég heklaði þessa um daginn, mér finnst þetta svo gaman að ég gæti alveg hugsað mér að gera fleiri. Þetta er svo fljótlegt og skemmtilegt.

27.9.09

Vettlingar


Ég gerði þessa vettlinga eftir að hafa séð vettlingana hjá "Made by Pom" blogginu. Ég notaði tvo þræði af einbandi, ljósbrúnan og dökkbrúnan saman. Heklunál nr. 4 og hálfstuðla. Ég var tvö kvöld með þá og skreytti svo með handlituðu bandi sem ég keypti í Þingborg í sumar.
Ég er bara ánægð með útkomuna.

6.9.09

Legghlífar






Ég sá þetta einhversstaðar á netinu, ég er alltaf að rekast á svo flottar prjónasíður (blogg). Þetta er algjör snilld, þegar Lilja Katrín er í sokkabuxum og kjól, sem mig langar oftast að hafa hana í, þá set ég á hana legghlífar þegar við förum út svo henni verði ekki kalt á kálfunum. Og hún rífur þær ekki af sér, sem ég óttaðist fyrst. Þær eru svo sætar.
Hér kemur uppskriftin, svona minnir mig að hún sé, þetta er upp úr mér.
Fitjað upp 10 L á prjón á prjóna nr. 3,5 með Kambgarni, fallega rauðu.
Prjónað ca 5-7 cm, þá aukið út um 2 L, prjónað 8 umferðir, þá aukið út um 2 L, prjónað 8 umferðir, þá aukið út um 2 L. Þá eru prjónaðar 8 umferðir aftur og tvær L teknar saman, svo prjónaðar 5 umferðir, þá teknar tvær saman aftur og svo prjónaðar 5 umferðir og allt fellt af. Tilbúið!!
Einfalt og fljótlegt.

Fleiri smekkir


Hér eru fleiri heklaðir smekkir. Mig langaði að prófa önnur form en er á bleika og rauða smekknum. Þetta er líka fínna bómullargarn sem ég keypti í A4 (áður Skólavörubúðin) á Smáratorgi. Þeir eru léttir og liprir og langar mig að gera enn fleiri.

29.8.09

Lilja Katrín í nýju peysunni

Hér er hún komin í nýju peysuna sína sem ég var að klára, setti tölur í hana í dag. Hún er prjónuð ofan frá og niður og fyrst notaði ég ljósrautt garn sem var afgangur af kjólnum sem ég prjónaði á hana. Svo þegar hann kláraðist þá bætti ég við dökkrauðum lit og finnst mér það bara koma vel út. Hún er svo montin að geta staðið svona sjálf, hún getur það í nokkrar sekúndur og svo dettur hún. En hún stendur meira og meira á hverjum degi. Það er ekki langt í að hún fari að labba held ég. Hún var svo fín í dag, í kjól og þessari peysu með prjónuðu dúkkuna sína og prjónahúfu allt eftir mig.

24.8.09

Hekl

Ég prófaði að hekla smekk handa Lilju Katrínu og finnst hann svona rosalega flottur! Nú langar mig að gera fleiri og keypti bómullargarn í A4 í dag, (áður Skólavörðubúðin). Mig langar að gera líka öðruvísi í laginu en samt ekki þessa týpisku hekluðu smekki, mér finnst þeir ekki flottir. Svo eru auðvitað plastsmellurnar notaðar sem www.krútt.is er með í bleiunum.

8.8.09

pjónað í sumar


Þetta er lopapeysa úr léttlopa sem ég gerði á mig í júní. Þetta mynstur er frá Önnu Leif vinkonu minni og hefur vakið athygli. Þetta er ekki svona týpiskt munstur enda finnst mér þau orðin einum of algeng og langar mig ekki í svoleiðis peysu. Mér finnst þessi æðisleg, hún er öðruvísi og létt og góð. Ég splæsti í hreindýrahornatölur sem passa fullkomlega.


Guðrún María er að prjóna sér lopapeysu og gengur það alveg rosalega vel. Hún er svo dugleg og klár stelpan mín, ég er mjög stolt af henni að leggja í þetta verkefni, aðeins 11 ára. Hún er líka úr léttlopa eins og sést á myndinni og á að vera með gráu mynstri, dökkgráar og ljósgráar áttablaðarósir.


Þarna sést eitt af prjónamerkjunum sem við Guðrún María bjuggum til einn daginn í sumar. Þau virka vel og eru mjög flott finnst okkur.



Þetta er byrjun á peysu á Lilju Katrínu. Ég átti þetta rauða og ljósbleika og fór svo í dag og keypti dökkvínrautt til að klára. Ég get bara ekki staðist þetta garn sem heitir "Baby Cashmerino" frá Debbie Bliss. Mér finnst það æði, ég get bara ekki sagt það nógu oft. Ég vildi að ég ætti alla liti heima þó ekki væri nema bara að horfa á það.
Þarna byrjaði ég efst, í hálsmálinu og ætla að prjóna hana niður, það er svo skemmtileg aðferð!


Svo er það dúkkan sem ég prjónaði í vor. Ég sá hana í Storkinum og féll fyrir henni, alveg kylliflöt. Ég notaði afganga og eru það mestmegnis "Baby cashmerino" frá Debbie Bliss. Ég er mjög ánægð með hana og finnst hárið geggjað.
Svo er auðvitað meira á prjónunum. Ég er að gera peysu á mig úr einföldum plötulopa, þar sem ég byrja á hálsmálinu eins og á rauðu peysunni.
Í sumar keypti ég svo þingborgarlopa, hvítan og er enn að hanna í huganum peysuna sem verður auðvitað á mig!!

7.6.09

Leðurskór

Já þessa skó saumaði ég á LK úr afgangs leðri sem ég á í poka. Ég á fullan bónuspoka af þessu brúna leðri en engan annan lit, ég væri til í rautt og grænt leður líka, þarf að athuga það. Þetta var ekkert mál að sauma þetta, ég keypti snið frá Ameríku og fór eftir því að mestu leyti. Svo á ég fullt af borðum sem ég keypti í Kanada fyrir 4 árum síðan. Ég er ótrúlega ánægð með útkomuna og þeir passa flott á LK.

Lopapeysa

Þarna er JÁ að máta lopapeysuna sem ég er að klára á hann. Hún verður með rennilás að hans ósk. Þarna er ég að athuga hvort hálsmálið sé í lagi og hann mátaði með prjóninn í. Ég er ótrúlega ánægð með mynstrið sem við JÁ sáum í Álafoss búðinni í Mosó. Þar sáum við peysu eins og þessa nema prjónuð úr tvöföldum plötulopa og með tölum. Þessi er úr Léttlopa. Konan í búðinni sagðist ekki eiga munstrið í bók, þannig að hún ljósritaði bara peysuna sem var til í búðinni og ég fór eftir því. Það var alveg nóg fyrir mig, ég mundi litina og gat talið út eftir ljósritinu. Algjör snilld, það er ekkert mál að setja peysu í ljósritunarvél og telja út eftir því. Hann er mjög ánægður með peysuna, nú þarf bara að finna rennilás og klára hana.

Mig langar bara líka í lopapeysu, ég er svo ánægð með þessa. Það er nauðsynlegt að eiga lopapeysu á sumrin á Íslandi finnst mér. Svo vill GM líka fá lopapeysu, þannig að það eru næg prjónaverkefni framundan. Veii, gaman gaman.

Húfur 1, 2 og 3

Þetta er húfa sem Jóhanna systir prjónaði handa stelpunni sinni sem er 15 ára. Hún er samin um leið og hún er prjónuð. Mig langaði að gera svona handa LK og fékk hana lánaða til að fá innblástur.
Þetta er svo húfan sem ég gerði úr afgöngum og lykkjufjöldinn og stærðin er alveg eins og á húfunni frá Jóhönnu. Hún varð heldur lítil svo ég ákvað að gera bara aðra. Enda er maður mjög fljótur með hverja húfu og ég var svo spennt að halda áfram að ég lagði hana eiginleg ekki frá mér fyrr en ég var búin.
Þannig að ég gerði aðra húfu. Bætti við 8 lykkjum og dýpkaði hana örlítið. Ég minnkaði eyrun og hafði böndin mjórri. Þetta eru líka afgangar og skáldað mynstur á leiðinni. Þessi kom mjög vel út og hún er farin að nota hana.

2.5.09

Nýtt á prjónunum

Þetta er teppi sem ég er að prjóna fyrir bók sem kemur út með haustinu held ég. Þetta er sama prjónið og í ljósa teppinu sem ég gerði fyrir LK en þetta er úr grófara garni. Það heitir Silkbloom og er úr 45% silki og 55% merinoull. Rosalega mjúkt og girnilegt. Það fæst í Nálinni, Laugavegi.


Húfa sem ég gerði úr afganginum af Kauni garninu sem ég gerði sjalið úr.



Húfa og vettlingar á lítið barn sem átti að vera komið fyrir 5 dögum síðan. Við bíðum spennt, þetta er vinur hans J sem er að eignast systkini. Ég segi að það komi stelpa en J er ekki sammála mér. Spennandi.



Kjóll sem ég prjónaði á LK. Hann er of stór ennþá sem er fínt, hann passar u.þ.b. þegar hún fer að labba. Hann er mjög flottur, prjónaður úr baby cashmerino frá Debbie Bliss sem ég eeeelllska. Ég er búin að gera ótrúlega margt úr þessu garni og fell alltaf fyrir því aftur. Bleika peysan sem ég gerði á LK er líka úr þessu garni.



30.3.09

nýtt!!

komin með heimasíðu fyrir taubleiuframleiðsluna

www.krútt.is

12.2.09

Nýjustu verkefnin


Þetta eru buxur sem ég saumaði á LK, þær eru úr velúr, alveg yndislega mjúkar og fínar. Þær eru svolítið stórar en hún getur samt alveg notað þær. Ég tók sniðið upp úr bók sem heitir "Blödt börnetoj" frá Klematis. Hún er mjög flott.


Svo eru það sokkarnir sem ég er að prjóna á GM, ætlaði að vera löngu búin með þá. Þetta er Hjerte garn sem heitir sock og ég keypti í Álafossbúðinni. Þetta er sama garn og ég notaði í vettlingana sem ég prjónaði fyrir jólin. Ég fitjaði upp á með bleiku Mohair Kitten sem ég átti, bara svo að hún þekki þá fljótlega í skólanum. Þá eru þeir ekki bara alveg gráir. Ég gerði líka svona sokka á JÁ en þeir eru orðnir svo skítugir og notaðir að ég vildi ekki taka mynd af þeim.

13.1.09

Græna peysan

Hún er langt komin græna peysan sem ég er að prjóna núna. Þetta er í þriðja skiptið sem ég prjóna úr þessu garni sem er Marianne Isager garn keypt í Skive í Danmörku. Vonandi þarf ég ekki að rekja hana upp eina ferðina enn og prjóna aðra. Þessi lofar góðu og er ég ánægð með það sem komið er. Mig langar að hafa hana aðeins síðari en þetta og svo eru auðvitað ermarnar eftir. Ég vona að ég eigi nóg garn í hana. Allavegana var nóg garn í hina peysuna þannig að það hlýtur að duga.

Þarna er peysan sem ég prjónaði nr. 2 úr þessu garni. Ég átti því miður ekki betri mynd af henni en þessa gleðimynd sem er tekin í vorferð með skólanum fyrir nokkrum árum. Alltaf gaman hjá kennurum.