16.2.08

íslenskt veður


já þetta er dæmigert fyrir Ísland, ef það er ekkert rok þá hlýtur eitthvað að vera að!!

13.2.08

vetrarfrí

Já ég er komin í vetrarfrí sem er í heila tvo daga. Og ég er sú eina á heimilinu sem er í vetrarfríi, ummmm....... ég hlakka til á morgun ætla ég að koma krökkunum í skólann og koma mér á fætur og svo hef ég allan daginn fyrir mig. Er mikið að spá í bæjarferð, annars ætla ég bara að spila það eftir hendinni, kannski langar mig bara að fara aftur uppí og þá geri ég það bara. Ljúft líf framundan, í tvo daga.

7.2.08

Jóhann brandarakarl

Jóhann sagði brandara í morgun þegar hann var á leiðinni í skólann:

Einu sinni var tómatur að ganga á götu og hann söng " nú liggur vel á mér, nú liggur vel á mér......" svo kom bíll og keyrði á hann og vélin í bílnum kastaðist út. Þá söng tómaturinn "nú liggur vél á mér, nú liggur vél á mér......"


mér fannst þetta alveg ótrúlega fyndið og hann fór með bros á vör í skólann og við mæðgurnar hlógum heima. GM ældi í nótt u.þ.b. 5 sinnum frá 3 leytinu og til morguns. Við ákváðum að vera heima. Svo er hún búin að vera hress í dag og fer vonandi í skólann á morgun. Hún situr nú ekki aðgerðarlaus þó að hún sé heima að jafna sig. Byrjaði á húfu á ömmu sína í morgun og kláraði hana núna eftir kvöldmat. Reyndar virðist hún vera of lítil, svo að við ætlum líklega að kaupa í aðra og hún fer nú létt með það að töfra fram aðra húfu. Amma verður glöð.

1.2.08

Debbie Bliss

Garnið góða sem bíður þess að verða sokkar á mig.