12.10.08

Þá er hún komin




Já loksins er hún komin, litla daman. Hún fæddist þann 9. október kl 6:33 um morguninn eftir ca 5 klukkutíma puð. Hún var 4485 gr. (sem er um 18 merkur) og 55 cm löng. Hún er með mikið svart hár og feitar bollukinnar. Eins og sést af myndunum eru systkini hennar afar stolt af henni. Mikið urðum við fegin að sjá hana eftir alla þessa bið og sjá líka að hún var svona fullkomin. Hún fékk 10 í læknisskoðuninni á spítalanum og er dugleg að drekka. Allt gengur vel og er ég öll að hressast eftir átökin.

5 ummæli:

frugalin sagði...

Yndislegar myndir af yndislegri fjölskyldu. Rosalega góð mynd af öllum þremur þarna neðst.

Nafnlaus sagði...

Falleg börn Guðný mín - enn og aftur til hamingju með nýjustu prinsessuna.
Kv.
Elín

Nafnlaus sagði...

Elsku Guðný
Til hamingju með litlu prinsessuna. Þetta er nú aldeilis fallegur barna skari sem þú átt.
Kveðja
Ingibjörg R.

Nafnlaus sagði...

Elsku Guðný og fjölsk. Ynnilega til hamingju með prinsessuna. Þið eruð aldeilis rík af fallegum börnum ;-) Hlakka til að fá að knúsa hana smá......... Gangi þér vel Guðný mín Kveðja Stína Run

Nafnlaus sagði...

Til hamingju:)

Ásta & co