12.9.08

myndir

Hér er bleika peysan tilbúin, búið að festa tölurnar og borðann á sinn stað.


Þetta er Hello Kitty myndin sem GM og ég saumuðum á bol sem hún á. Mér fannst hún heldur lengi að klára hana svo ég tók hana og gerði hjartað. En við erum mjög sáttar við útkomuna.


Þetta er gallinn sem ég saumaði úr bókinni sem ég keypti í Danmörku. Hann er í stærð 68 og mjög hlýr held ég, kannski of hlýr!

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

óóóh eeeelska bleikt :)

kv.
e

loaxel sagði...

Þetta er allt saman æðislegt!
Þetta barn verður best klædda barn Íslands.
Ólöf

frugalin sagði...

þetta verður nú alveg yndislega bleik lítil prinsessa hjá þér. Best að ég kaupi ekkert bleikt handa henni svona til mótvægis.