Já hún sefur mjög mikið eins og börn þurfa á þessum aldri. Dagurinn gengur út á að drekka, sofa og kúka. Þægilegt líf!28.10.08
alltaf sofandi
Já hún sefur mjög mikið eins og börn þurfa á þessum aldri. Dagurinn gengur út á að drekka, sofa og kúka. Þægilegt líf!12.10.08
Þá er hún komin

Já loksins er hún komin, litla daman. Hún fæddist þann 9. október kl 6:33 um morguninn eftir ca 5 klukkutíma puð. Hún var 4485 gr. (sem er um 18 merkur) og 55 cm löng. Hún er með mikið svart hár og feitar bollukinnar. Eins og sést af myndunum eru systkini hennar afar stolt af henni. Mikið urðum við fegin að sjá hana eftir alla þessa bið og sjá líka að hún var svona fullkomin. Hún fékk 10 í læknisskoðuninni á spítalanum og er dugleg að drekka. Allt gengur vel og er ég öll að hressast eftir átökin.7.10.08
Vettlingar á mig
vika 42
Kæra Barn
Nú er nóg komið. Hversu lengi á ég að bíða eftir þér. Systkini þín koma heim með vonleysissvip á hverjum degi úr skólanum þegar þau sjá kúluna á mér. Þau segja líka "gangi þér vel ef þú ferð á spítalann í dag" á hverjum morgni þegar þau fara út úr dyrunum. Hver dagur fyrir þeim er miklu lengri að líða en fyrir mig og er ég nú samt eignlega búin að fá nóg af biðinni.
Ég er búin að prjóna allt sem mér dettur í hug. Ég er búin að lesa nokkrar bækur, (sem ég geri aldrei, er að minnsta kosti ca 1/2 ár með eina bók venjulega). Er búin að þvo allan þvott sem er í óhreinatauinu, ( sem gerist mjög sjaldan að það sé tómt). Nýbúin að ryksuga og þurrka af, (kannski ég geri það aftur á eftir!!).
Já við bíðum öll spennt eftir að sjá þig. Pabbi þinn vinnur heima alla daga núna.
Farðu nú að koma, ég bíð eftir verkjum!

2.10.08
Nýjasta peysan
Þessa peysu prjónaði ég úr afgöngum. Ég byrjaði á henni í gær og kláraði hana áðan. Ég á reyndar eftir að setja tölur á hana. Svo er bara að sjá hvort hún passar, hún varð heldur lítil og með þessu áframhaldi þá verður hún bara á Baby Born. Ég er orðin pínu þreytt á að bíða, þó ég hafi nú bara beðið í 2 daga. Fór oft upp og niður stigann í dag, fór út í gönguferð, fékk punktanudd hjá Jóhönnu systur....... vitið þið um fleiri ráð??26.9.08
Til sýnis
Í glugganum á Nálinni á Laugaveginum er nú til sýnis silkihúfan, vettlingarnir, trefillinn og sokkarnir sem ég prjónaði ef einhver hefur áhuga á að skoða. Mér láðist að taka myndir af þessu áður en þetta fór til Helgu. En það er alltaf gaman að gera sér ferð á Laugaveginn og kíkja þá á gluggann í leiðinni.
Er heima að bíða, 4 dagar eftir!!
Er heima að bíða, 4 dagar eftir!!
17.9.08
í fríi heima
Já nú er ég komin í frí og bíð eftir að daman komi. Ég hef það bara mjög notalegt, er núna að hlusta á tónlist og prjóna litla barnasokka úr silkigarni. Ég sef á morgnanna eftir að krakkarnir eru farnir í skólann. Ég er líka að lesa bók sem er mjög spennandi og heitir Steinsmiðurinn eftir Camillu Läckberg. Krakkarnir koma svo um tvö leytið heim þannig að dagurinn er ekki lengi að líða hjá mér.
Annars bíð ég spennt eftir að heyra niðurstöðurnar úr kosningunni hjá ljósmæðrum á föstudaginn. Ég vona svo innilega að þær fari nú ekki að samþykkja eitthvað mikið minna en þær börðust fyrir bara til að koma í veg fyrir neyðarástand. Þetta segi ég sem er sett daginn eftir að alsherjarverkfallið átti að skella á. Þær mega bara ekki gefast upp í baráttunni fyrir jöfnum launum kynjanna. Ég lít svo á að þær séu að berjast fyrir mig líka sem tilheyri kvennastétt. Og hana nú, áfram ljósmæður.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)