13.2.14

Afgangar



Þetta eru litirnir í næstu peysu, þeir koma úr körfunni góðu sem er full af afgöngum. Þetta er mestmegnis Textílgarn en líka Höjland frá Isager og Alpaka 2 frá Isager. Ég er þegar komin með mynd af peysunni í hausinn á mér og eitt verður uppgefið og það er: RENDUR.


Hér er ég svo byrjuð á stroffinu. Það er tvær sléttar og svo þrjár garðaprjón á milli. Fyrsta röndin hefur litið dagsins ljós og svo verður prjónað eftir tilfinningu. Stroffið er á prjóna nr. 3 og svo skipti ég á prjóna nr. 3,5. Nú er ég spennt að halda áfram og sjá útkomuna.

1 ummæli:

Prjóna æði sagði...

Flott síðan þín. Ég þarf að fá þig til að kenna mér að setja svona borða undir upphafsmyndunum. AF