9.5.12

Bláa peysan


Þetta er bláa peysan sem er í vinnslu núna. Reyndar er hún búin að vera ansi lengi í vinnslu en það er svo margt annað sem ég er að gera að hún mjakast smátt og smátt. Nú langar mig að reyna að klára hana áður en ég fer að vinna í sumar í Ömmu Mús. Já ég er búin að fá sumarvinnu þar og er alsæl með það að vera innan um fallega liti og garn allan daginn. Ég ætla að setja inn fleiri myndir af þessari en það tókst illa að taka myndir, var reyndar bara með símann minn núna. Ég kannski dreg fram myndavélina við tækifæri og mynda hana betur. Þetta er mín hönnun og er hún undir áhrifum frá Helgu Isager. Ég fór á námskeið hjá henni sl. haust og hún hjálpaði mér að reikna út í þessa peysu. Ég var með í kollinum hvernig hún átti að vera og er ég ánægð með útkomuna. Ég vona að hún endi eins flott og ég hef hana í kollinum.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gaman að sjá myndirnar. Ég hlakka mikið til að sjá bláu peysuna og auðvitað kem ég í búðina og kaupi garn af þér. Anna Fanney