8.8.09

pjónað í sumar


Þetta er lopapeysa úr léttlopa sem ég gerði á mig í júní. Þetta mynstur er frá Önnu Leif vinkonu minni og hefur vakið athygli. Þetta er ekki svona týpiskt munstur enda finnst mér þau orðin einum of algeng og langar mig ekki í svoleiðis peysu. Mér finnst þessi æðisleg, hún er öðruvísi og létt og góð. Ég splæsti í hreindýrahornatölur sem passa fullkomlega.


Guðrún María er að prjóna sér lopapeysu og gengur það alveg rosalega vel. Hún er svo dugleg og klár stelpan mín, ég er mjög stolt af henni að leggja í þetta verkefni, aðeins 11 ára. Hún er líka úr léttlopa eins og sést á myndinni og á að vera með gráu mynstri, dökkgráar og ljósgráar áttablaðarósir.


Þarna sést eitt af prjónamerkjunum sem við Guðrún María bjuggum til einn daginn í sumar. Þau virka vel og eru mjög flott finnst okkur.



Þetta er byrjun á peysu á Lilju Katrínu. Ég átti þetta rauða og ljósbleika og fór svo í dag og keypti dökkvínrautt til að klára. Ég get bara ekki staðist þetta garn sem heitir "Baby Cashmerino" frá Debbie Bliss. Mér finnst það æði, ég get bara ekki sagt það nógu oft. Ég vildi að ég ætti alla liti heima þó ekki væri nema bara að horfa á það.
Þarna byrjaði ég efst, í hálsmálinu og ætla að prjóna hana niður, það er svo skemmtileg aðferð!


Svo er það dúkkan sem ég prjónaði í vor. Ég sá hana í Storkinum og féll fyrir henni, alveg kylliflöt. Ég notaði afganga og eru það mestmegnis "Baby cashmerino" frá Debbie Bliss. Ég er mjög ánægð með hana og finnst hárið geggjað.
Svo er auðvitað meira á prjónunum. Ég er að gera peysu á mig úr einföldum plötulopa, þar sem ég byrja á hálsmálinu eins og á rauðu peysunni.
Í sumar keypti ég svo þingborgarlopa, hvítan og er enn að hanna í huganum peysuna sem verður auðvitað á mig!!

2 ummæli:

prjónakonan sagði...

gaman að skoða síðuna þína :) En skemmtileg þessi dúkka og seg mér -er þessi uppskrift til sölu í Storkinum ? (bý nefnilega ekkiá höfuðborgarsvæðinu )
bestu kveðjur
Vilborg prjónakona

Anna María sagði...

Sæl
Máttu deila þessari uppskrift, þessi peysa er ekkert smá flott
kv