18.11.07

Það tókst!!

Hér sjást sokkarnir góðu, það tókst hjá mér að prjóna fjögur pör á 6 dögum. Reyndar á ég eftir hálfan hæl á öðrum rauða sokknum en það er bara vegna þess að garnið kláraðist. Það var greinilega minna í rauðu dokkunum en hinum. En Tæfurnar voru alveg rosalega ánægðar með sokkana og pössuðu þeir allir nema á Önnu Leif, ég þarf aðeins að stækka þá. Reyndar lituðu bláu sokkarnir puttana á mér bláa og finnst mér það lélegt að svona dýrt og vandað garn skuli lita. En sem sagt þetta tókst og er það ákveðinn sigur fyrir mig að sanna það fyrir sjálfri mér að ég hafi getað þetta. Gott hjá þér Guðný!!

2 ummæli:

frugalin sagði...

Tek undir það, Gott hjá þér Guðný

Æðislegir sokkar!

Ólöf tæfa sagði...

Já, ég líka! Rosalega gott hjá þér. Og þetta eru alveg ótrúlega fallegir sokkar! Og mjúkir og hlýir og bara æðislegir!

TAKK FYRIR!