30.6.08

Prjónaverkefni í gangi

Þetta er verkefni nr.1 sem ég er með í gangi núna. Ég er búin að prjóna alla peysuna og sauma saman en á eftir að setja þennan fína borða á hálsmálið og meðfram hnappagötunum og svo á ég eftir að festa tölurnar flottu sem ég keypti í Nálinni.

Þetta er verkefni nr. 2 sem er á prjónunum núna og verður líklegast eitthvað áfram. Þetta er barnateppi sem er frekar seinlegt að prjóna og fíngert. En það er allt í lagi því að það er alltaf gott að hafa eitthvað á prjónunum.


Þetta er svo verkefni nr. 3 og er húfa á Jóhann. Ég byrjaði á henni í dag og hún verður nú ekki lengi á prjónunum hjá mér. Hún er mjög fljótleg og gaman að prjóna hana.


Svo að lokum er það silkihúfan sem ég er að prjóna fyrir mig og Helgu í Nálinni. Ég byrjaði á henni í gærkvöldi og líst bara vel á hana. Þetta er reyndar frekar seinlegt verkefni því ég nota prjóna nr. 2 en skemmtilegt engu að síður.

Eins og sést þá hef ég nóg að gera í sumarfríinu mínu og er mjög fegin og glöð að vera komin í frí.


2 ummæli:

frugalin sagði...

Vá, æðislegar myndir og flott verkefni. Prjónalægð hvað ...

Gangi þér vel.

Ólöf tæfa sagði...

Rosalega ertu myndarleg!
Peysan bleika er æði! Hildur Tinna notaði sína næstum því í heilt ár. Hún vex algerlega með barninu.
Ólöf