26.5.08

Krakkarnir í sumar

Jæja þá er það orðið ljóst, Guðrún María fer í sumarbúðir með vinkonum sínum í júní og hlakkar mikið til. Svo fer hún líka á ljósmyndanámskeið og ætlar að taka fullt af flottum myndum fyrir mömmu sína þegar hún er búin þar.
Jóhann verður í fótbolta og í fótbolta og í fótbolta í sumar, þrisvar í viku í allt sumar og kannski er hann líka að fara á námskeið hjá TBR með Óttari vini sínum. Sjáum til.
Þannig að ég sé fram á nokkrar Laugavegsferðir ein eða með vinkonum mínum í byrjun júní, barnlaus og alles.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ég skal koma með þér
J

Nafnlaus sagði...

íííhhh muna að heimsækja Elínu í leiðinni ;)