21.12.07

jólafrí

jæja þá er greinilega jólafríið byrjað hjá börnunum mínum. Jóhann syngur stanstlaust "þá nýfæddur jesu í ...." og Guðrún María er þokkalega pirruð á honum og kallar stanslaust HÆTTU eða "mamma viltu segja honum að hætta, ég þoli þetta ekki". Nú eru þau að rífast yfir því hver á Mika diskinn. Skemmtilegt jólafrí og byrjar vel.

3 ummæli:

frugalin sagði...

Hehe, sama sagan hér, Ólöf er búin að væla síðan kl. 12 að hún ætli ekki í fimleika, meiri skemmtunin sem maður hefur af þessum börnum - jólafrí hvað?

Nafnlaus sagði...

hi hi - sendið þau bara til mín - þau eru svo vel upp alin að þau sýna auðvitað sínar bestu hliðar í annarra manna húsum ;)

Nafnlaus sagði...

Kannast við þetta, á þessu heimili er slegist aðra mínútuna og knúsast hina..... hvort tveggja gefur gífurlegan hávaða af sér!