19.10.07

Lítil barnahúfa


Ég veit ekki hvort að þetta verður einhvern tíman sú barnahúfa sem ég vonast til. Mér finnst þessi uppskrift eitthvað svo skrýtin, hún er ekki alveg eins og Jóhanna systir hefur prjónað. Málið er bara með mig að ég hef aldrei prjónað svona áður, eins og ég hef nú prjónað mikið. En við bíðum bara og sjáum til hvort hún verður að einhverju handa litlu krúsí frænku minni.

3 ummæli:

frugalin sagði...

Mér sýnist þetta vera alveg rétt hjá þér. Þetta verður dýrindis húfa... og sokkarnir - alveg geggjaðir, ég verð að prjóna mér svona.

Guðný sagði...

búin að prófa á litlu dömuna og passar svona fínt, nú er bara að taka mynd af henni með húfuna góðu!!

Ólöf tæfa sagði...

Ótrúlega er þetta flott hjá þér!

Ég þarf að koma með rastafari húfuna sem ég prjónaði til Íslands. Hún átti ekki að verða rastafari en ég prjóna bara svo skryngilega að hún varð risastór.